Ég er með nokkrar hugleiðingar hérna sem mig langar að leyfa ykkur að heyra:
1.Við vorum að ræða tryggingar í vinnunni eftir að það varð slys í heima húsi hjá einum, sem sakt útlimur datt af (putti). Hann hringir og er að ath með tryggingarnar sínar með það mál en nei. Í smáaletrinu stendur að þú þurfir að missa tvo útlimi og puttar og tær eru ekki taldir sem útlimir. Þarf maður að srepast til að geta sótt um slysabætur????
2.Amfetamín verksmiðan sem var verið að finna í Hafnarfirðunum var með 1 tann af efni til framleiðslu eða svo. Hvert átti þettta allt að fara ??? Við Íslendingar erum um 300þús og þetta er selt í grömmum... Ef mig skátlast ekki þá þyrftu 300 þúsund Íslendingar að kaupa 3,333 grömm af þessum mönnum... er þetta eðlilegt á þessu litla skeri???
3.Kreppan kemst hér inn líka :D hvað segir fólk í kreppunni ??? Verðum við ekki að vera glöð og hafa gaman af??? fólk að missa vinnuna og svona, í fréttum í dag þá voru þeir að segja að um 10 þúsund manns munu missa vinnuna og að um 4000 væru nú atvinnulausir :S En ekki örvænta hver og einn Íslendingur skuldar bara um 6900$ á hvern haus´. Þetta er víst mikið erlendis en hvað þetta eru bara 843120 kr , miðað við gengi í dag ákurat núna. Mun verða um millijón á morgun :D
4.Er að pæla í að hafa smá atkvæðisgreiðslu hérna hvort að við ættum ekki að fara að breyta um gjaldmiðil... Hvað segir fólk um Evruna umtöluðu eða koma smá sjokki á fólk gefa Bretanum og Bandaríkjamönnunum puttann og taka upp Rúbluna. Hvernig lýst fólki á að þvo peninga fyrir mafíuna og drekka vodka eins og vatn???
En ég held að þetta sé komið nóg í dag.
28. október 2008 klukkan 23:34
Valdimar Daníelsson 2 athugasemdir
Jæja ég er búinn að vera að breyta aðeins til hérna hjá mér og ætla hérna í leiðinni að senda hérna inn kannski svona eitt til tvö blogg eða svo, þó svo að ég hafi verið með aðrar yfirlýsingar hérna :D en það er eitthvað nýtt búið að gerast í mínu lífi síðustu 2 mánuði eða svo. Það helsata er jú ég er kominn með yndislega kærustu. Það er hún Regína :D og er hún AWESOME ;) Ég átti einmitt afmæli um daginn og það sem hún gerði ekki fyrir mig veit ég ekki. Hún bauð mér til dæmis út að borða, gaf mér flotta peysu og töff armband. Var búinn að föndrra flott og dekraði algjörlega við mig.Síðan 11 um kvöldið þá fórum við á kaffi parís og þar fékk ég afmæliskökuna mína og á því voru kerti... Þetta var frábært suprise. :D Kvöldmaturinn var engu síiðri, hún bauð mér á Caruso og var allt þar frábært :D Ég ætlaði einmitt að þakka henni fyrir besta dag í heimi :D Takk Regína ;)
En þettta er nóg í bili... set inn lítið blogg hér á eftir :D
Jæja þá er komið að því Valdi er að blogga um Danmörk :D
Kannski orðið soldið langt síðann en hvað með það hérna kemur það...
Við mamma fórum sem sagt til danmerkur í júní og fórum snemma af stað... Vorum þarna yfir helgi og þannig að við höfðum lítinn tíma en samt náðum við að eyða alveg ótrúlegum pening :S þetta var rosalegt... Hitti síðan pabba minn eftir tja nokkuð mörg ár og ég verð að segja að kallinn leit bara nokkuð vel út þrátt fyrir margar óskemmtilegar sögur sem ég var búinn að heyra um hann... Síðann þurfti ég að bíða pínu eftir móðir minni á laugardagskveldið ( 2 tíma ) af því að hún hafði lykilinn af herberginu, en það var í lagi nema eitt atvik... ég var í góðum gír búinn að fá mér nokkra og var bara að fylgjast með henni úti á götu, fékk mér sígarettu og hallaði mér upp að einu húsi þar, nema hvað þegar ég sný mér við er þá ekki þarna stæðsta helvítis könguló sem ég hef séð beint í andlitinu á mér. Ég er nú ekki hræddur við þessi kvikindi en ég viðurkenni alveg að ég stökk í burtu og öskraði eins og smá stelpa... mér varð pínu mikið brugðið á þessu helvíti.... En anars var bara ferðin yfir höfuð mjög góð þrátt fyrir köngulær og sjúklega flughrædda móður, ekki má gleyma svo þrumuveðrinu og rigningunni sem við fengum fyrsta daginn þegar við vorum nýkomin út úr strætóinum :S
En út í allt annað... ég er búinn að sækja um nýja vinnu sem verslunarstjóri í matvörubúð og ég fæ að vita á næstu vikum hvað mun gerast þar... er einig að spá í að labba út úr vinnunni minni á föstudaginn ef ég fæ ekki það sem ég vill... sem sagt mikinn pening :D og jú síðan er maður að fara til eyja um helgina :D það verður stuð og djamm og læti :D
en þangað til seinna bæbæ
ps. ég er mjög latur bloggari... og stoltur af því
29. júlí 2008 klukkan 20:39
Valdimar Daníelsson 15 athugasemdir
Já ég fór í heimsókn til Nikka og Höllu á Akureyri um síðustu helgi... Var þar reyndar í viku en hverju skiptir það... Á fimmtudaginn þá fór ég með honum Nikka í vinnuna og þurfti að vakna kl 6 um morguninn (mikið sumarfrí hjá mér) ég ætla samt ekki mikið að kvarta, því ég fékk gott að borða og kassa af bjór sem ég er loksins búinn að klára núna... En já fékk að sjá mikið í vinnunni með honum t.d. sá ég einn svona já inbread eða eitthvað í þá áttina og jú nokkrar "guggur"... Nikki er heppinn að vera á þessum hring (samt hamingjusamur með henni Höllu :D ). Á föstudeginum þá kíkti ég á Ólafsfjörð á hann Kristján og var gaman að sjá hann eftir allann þennann tíma... Seinna um kvöldið þá kíktum við ( ég og Nikki ) á eitthvað ball þarna fyrir norðan, blautbolakeppni og svona, það var hörkustuð á okkur þá... Laugardagurinn fór mikið í að vera í þynnku og jú fórum á spyrnukeppnina, var reyndar kalt og ég er enn með suð í eyrunum eftir allann hávaðann ( ég er samt ekki orðinn svo gamall ). Um kvöldið kom Kata og Karen að spila og jú við vorum flest öll í glasi... Fórum svo niður í bæ og ekki á Sjalann þó svo að ég og Nikki vorum búnir að kaupa okkur miða þar inn... Sáum meðal anars nokkur slagsmál og læti ( btw það var geðveiki þarna en þetta var skemmtileg helgi )... Sunnudagurinn fór í þynku og drift keppni, komst einmitt að því að það er meira töff að drifta í N4S en að horfa á það í raunveruleikanum... Mánudagurinn fór í að reyna að rata um Akureyri og síðan að drekka um kvöldið einn ( Skötuhjúin fóru á einhvern kvöldmat vegna eins árs stúdentaafmæli hjá Höllu ) en loksins þegar ég var orðinn vel í glasi kom Kata að drekka með mér og 2 mín seinna hann Nikki að gera ákveðinn hlut sem við nefnum ekki hérna ( en tók hann dágóða stund að gera :D ). Já og djammið um kvöldið... 17. júní þjóðhátíðardagurinn sjálfur fór í leti aka þynku og kíktum jú á einhverja skemmtum niður í bæ um kvöldið, sem var allt í lagi, hefði samt verið kannski aðeins skemmtilegri ef maður hefði þekkt einhvern þarna en svona er að fara upp í sveit ...
En þetta var alveg frábær ferð og vonandi fer ég fljótlega þangað aftur... blogga síðan um Danmerkurferðina eftir smá... bæbæ
25. júní 2008 klukkan 17:15
Valdimar Daníelsson 8 athugasemdir